{"product_id":"orp-verdur-til-a-flateyri-i-87286-72249","title":"Þorp verður til á Flateyri I # 87286","description":"Þorp verður til á Flateyri. 1. hefti. Þræðir spunnir út frá sendibréfum föður til sonar. Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir tók saman og skrásetti.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBréfasöfn hjónanna Guðrúnar Torfadóttur frá Flateyri og séra Jóhanns Lúthers Sveinbjarnarsonar prófasts á Hólmum í Reyðarfirði telja um 1100 sendibréf frá ótal mörgum bréfriturum. Tveir úr hópi þeirra eru María Össurardóttir, móðir Guðrúnar og Sveinbjörn Magnússon, faðir séra Jóhanns Lúthers.\u003cbr\u003eFlateyri við Önundarfjörð varð til sem þorp á síðari hluta 19. aldar. Fiskveiðar og vinnsla aflans voru undirstaðan. Sendibréf sem rituð voru á Flateyri um aldamótin 1900 koma mikið við sögu. Eru þau hluti tveggja bréfasafna sem hafa um 100 ára skeið legið þar í ferðakofforti og kommóðuskúffu. Hér kennir ýmissa forvitnilegra grasa úr sögu þorpsins. (Bókatíðindi 2016).","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440440209736,"sku":"OSC-72249","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/87286.jpg?v=1770473261","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/orp-verdur-til-a-flateyri-i-87286-72249","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}