{"product_id":"pabbi-og-mamma-75481-54806","title":"Pabbi og mamma # 75481","description":"Pabbi og mamma. Eyjólfur Guðmundsson frá Hvoli segir frá.\u003cbr\u003eEyjólfur Guðmundsson á Hvoli í Mýrdal var fæddur 31. ágúst 1870 að Eyjarhólum í sömu sveit\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e(Dyrhólahreppi). Var Guðmundur faðir hans Ólafsson, af prestaætt sira Högna á Breiðabólsstað, nafnkunnur maður á sinni tið sem bóndi og sjógarpur, en þá þurfti þessa við með suðurströnd landsins. Er talið, að Ólafur afi Eyjólfs hafi fyrstur reist bú á Eyjarhólabýli við Pétursey, og við þann stað voru margar minningar Eyjólfs bundnar, eins og sjá má af ýmsu, er hann hefur ritað, þótt ættin hafi ekki ílenzt þar. — Kona Guðmundar, móðir Eyjólfs, var Guðrún Þorsteinsdóttir frá Úthlíð í Biskupstungum, og var það kyn kjarnmikið og rómað.\u003cbr\u003eEyjólfur á Hvoli kvæntist árið 1904 Arnþrúði Guðjónsdóttur frá Þórustöðum í Eyjaíirði, ágætiskonu. Börn eignuðust þau 6, og af þeim komust 5 upp, 3 dætur og 2 synir: Anna (ógift) heima, Ingveldur gift Daníel Guðbrandssyni bónda í Kerlingardal, Steinunn gift Sigurjóni Árnasyni bónda í Pétursey, Guðmundur (ókvæntur) bústjóri heima og Sigurður, nú einnig heima, kvæntur Sigurbjörgu Guðnadóttur frá Háisi í Fnjóskadal.\u003cbr\u003e","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122842141000,"sku":"OSC-54806","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/75481.jpg?v=1754751163","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/pabbi-og-mamma-75481-54806","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}