{"product_id":"pall-jonsson-fra-rnolfsdal-35411-32920","title":"Páll Jónsson frá Örnólfsdal # 35411","description":"Páll Jónsson frá Örnólfsdal. Steindór Steindórsson frá Hlöðum tók saman.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ePáll Jónsson fæddist í Lundum í Stafholtstungum 20. júní 1909, sonur Ingigerðar Kristjánsdóttur og Jóns Gunnarssonar, sem þar voru í húsmennsku. Jón faðir hans var löngum á faraldsfæti og Ingigerður móðir hans var í húsmennsku á mörgum bæjum í Borgarfirði.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁ 17. ári flutti Páll til Reykjavíkur og bjó þar síðan. Hann starfaði lengi sem bókavörður við Borgarbókasafn Reykjavíkur en var einnig einn af forvígismönnum Ferðafélags Íslands, landskunnur bókasafnari og ljósmyndari.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eLjósmyndasafn Páls telur á að giska 20.000 ljósmyndafilmur, teknar víðs vegar um landið. Hann og vinur hans Þorsteinn Jósefsson höfðu margvíslega samvinnu við ljósmyndun og varð myndagerðin Páli talsverð tekjulind þegar fram í sótti. Fjölmargar myndir Páls birtust í Árbók Ferðafélags Íslands, en einnig í tímaritum og blöðum. Páll hafði glöggt auga fyrir myndefni og var ósínkur á tíma til að bíða eftir rétta augnablikinu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ePáll starfaði að bókaútgáfu með Örlygi Hálfdanarsyni bókaútgefanda og lagði gjörfa hönd á margar af glæsilegum bókum sem forlag hans gaf út á 7. og 8. áratug 20. aldar. Páll gaf loks Örlygi myndasafn sitt en Örlygur gaf síðan safnið til Héraðsskjalasafns Skagfirðinga árið 2005.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125381562696,"sku":"OSC-32920","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/35411.jpg?v=1754803903","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/pall-jonsson-fra-rnolfsdal-35411-32920","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}