{"product_id":"passamyndir-65915-57682","title":"Passamyndir # 65915","description":"Passamyndir. Skáldsaga eftir Einar Má Guðmundsson.\u003cbr\u003e„Síðustu daga hefur fjallið leitað á mig eða öllu heldur sumarið á fjallinu.“ Þannig hefst frásögn Haraldar af löngu liðnu sumri þegar hann hélt til Noregs að vinna og ætlaði svo að ferðast um, lenda í ævintýrum og kynnast heiminum; upprennandi skáld þyrsti í lífsreynslu. En það gleymdist að gera ráð fyrir ástinni sem setur strik í alla reikninga ... Passamyndir er ferðasaga, ástarsaga og þroskasaga – því hvað er meira þroskandi en framandi staðir, fólk og tilfinningar? Hér er kraumandi mannlíf og ólgandi æska, stórbrotnar persónur, skemmtisögur, örlög grimm – allt þetta vefur Einar Már Guðmundsson í sinn galdravef af alkunnri list. Sagan sprettur úr frjóum sagnaheimi, frá sömu slóðum og verðlaunabókin sígilda, Englar alheimsins, og ættarþríleikurinn Fótspor á himnum, Draumar á jörðu og Nafnlausir vegir. Með Passamyndum stækkar sá heimur enn.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122237669704,"sku":"OSC-57682","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/65915.jpg?v=1754741598","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/passamyndir-65915-57682","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}