{"product_id":"passiusalmarnir-44422-40746","title":"Passíusálmarnir # 44422","description":"Passíusálmarnir. Eftir Hallgrím Pétursson.\u003cbr\u003ePassíusálmarnir eru eitt af lykilbókmenntaverkum íslenskrar menningarsögu. Þeir eru fluttir ár hvert bæði í útvarpi og kirkjum, og sungnir við ýmis tækifæri. Sálmarnir voru fyrst gefnir út á Hólum árið 1666 og eru eitt örfárra bókmenntaverka íslenskra höfunda sem samfellt hafa verið til á bókamarkaði frá fyrstu útgáfu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ePassíusálmaútgáfa Marðar Árnasonar í hönnun Birnu Geirfinnsdóttur brýtur blað í langri útgáfusögu sálmanna, þar sem ekki er einungis um að ræða hefðbundna útgáfu á sálmunum, því auk sálmanna eru birtar ítarlegar skýringar fræðimannsins.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSérhvert erindi er með orð- og efnisskýringum en auk þeirra er mælskufræðileg bygging sálmanna skýrð með því að tilgreina hvar í byggingu hvers sálms erindin standa, hvort þau eru texta- eða útleggingarvers, bænir eða ávörp. Framan við hvern sálm er birtur samtímatexti prestahandbókarinnar sem Hallgrímur og aðrir starfsbræður hans í prestastétt á 17. öld studdust við, en þar er að finna þá samantekt úr guðspjöllum Nýja testamentisins sem Hallgrímur fylgir við efnisskipan Passíusálmanna. Aftan við hvern sálm er inntak hans dregið saman í efnisskýringu og gerð grein fyrir bragarhætti. Milli sálmanna er svo skotið inn frekari útlistunum á Passíusálmum, viðtökum þeirra og álitamálum við skýringu þeirra og skilning á guðfræði þeirra.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ stað heildstæðs formála eða eftirmála er reynt með þeim hætti að tengja umfjöllunarefni hvers sálms nánar við breiðari útlistun á verkinu í heild sinni, samfélaginu sem það spratt úr og rúmlega þriggja alda túlkunarsögu þess.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124863074632,"sku":"OSC-40746","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/44423.jpg?v=1754789675","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/passiusalmarnir-44422-40746","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}