{"product_id":"persius-rimur-58291-28356","title":"Persíus rímur # 58291","description":"Persíus rímur eftir Guðmund Andrésson og Bellerofontis rímur. Jakob Benediktsson bjó til prentunar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGuðmundur var ættaður frá Bjargi í Miðfirði. Hann stundaði nám við Hólaskóla en varð síðar djákni og kenndi. Hann kom sér fljótlega í vandræði vegna kveðskapar, meðal annars gegn Þorláki Skúlasyni biskup, og samdi ritgerðina Discursus oppositionis gegn Stóradómi. Fyrir þetta var hann handtekinn og færður til Kaupmannahafnar af Henrik Bjelke, höfuðsmanni. Í Kaupmannahöfn var Guðmundur settur í Bláturn en var síðan náðaður af konungi 24. desember 1649 fyrir orð Ole Worm.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁri síðar fékk hann inni í Kaupmannahafnarháskóla. Á árunum 1650-54 samdi hann íslensku orðabókina Lexicon Islandicum, með latneskum skýringum. Hún kom út í Kaupmannahöfn árið 1683. Orðabókin er talin vera merk heimild um íslenskan orðaforða á fyrri hluta 17. aldar og áfangi í íslenskri orðabókargerð. Hann bjó til prentunar Völuspá með skýringum, en bæði þessi rit voru gefin út eftir dauða hans af Peder Hansen Resen. Guðmundur lést í Kaupmannahöfn árið 1654, dánarörsökin var kólera.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125552808264,"sku":"OSC-28356","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/29994.jpg?v=1754811036","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/persius-rimur-58291-28356","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}