{"product_id":"raddir-um-nott-63492-17065","title":"Raddir um nótt # 63492","description":"Raddir um nótt. Ljóð eftir Helga Sveinsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSéra Helgi Sveinsson fæddist 25. júlí 1908 að Hvítsstöðum í Mýrasýslu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eLauk stúdentsprófi 1930, kennaraprófi 1934 og guðfræðiprófi 1936. Barnakennari 1934–37. Prestur að Hálsi í Fnjóskadal 1936–40 og í Arnarbælisprestakalli frá 1940 til æviloka. Bjó í Hveragerði frá 1942. Kennari þar frá 1943 við unglingaskóla, Garðyrkjuskólann að Reykjum og Hlíðardalsskóla. Í sýslunefnd frá 1946.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHelgi var hugsjónamaður og var frelsi, jafnrétti og bræðralag honum hugleikið. Hann var hrókur alls fagnaðar á vinafundum og átti létt með að yrkja. Helgi var orðlagður fyrir góðar ræður og orti frábær ljóð, en þekktastur er hann þó fyrir tækifærisvísur sem margar urðu landskunnar.\u003cbr\u003eRaddir um nótt er fyrsta ljóðabók séra Helga.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eÁstir\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eUngar varir okkar mættust,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eóskir beggja saman runnu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBrosin þögul eiða unnu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEldarnir á himnum brunnu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHeitt og viðkvæmt hrærast sá ég\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehjarta þitt í leyndu tári.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBernsku þinnar sólskinssumur\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esváfu í þínu gullna hári.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eKonungarnir heiðu, háu, -\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eheitir dagar lífs og máttar, -\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ekomu í skýjum austuráttar\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eeftir drauma vökunáttar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSvanir okkar urðu fleygir:\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eorðin, sem á vörum lágu. -\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eJörðin sigldi um sumarnætur\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esvefnlaus yfir djúpin bláu.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126557376840,"sku":"OSC-17065","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/63492.jpg?v=1754828201","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/raddir-um-nott-63492-17065","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}