{"product_id":"reimleikar-i-reykjavik-72494-46768","title":"Reimleikar í Reykjavík # 72494","description":"Reimleikar í Reykjavík. Steinar Bragi tók saman. Ljósmyndir Jóhann Páll Valdimarsson. Teikningar Sunna Sigurðardóttir.\u003cbr\u003eVeistu að á Alþingi er háaloft sem stendur autt fyrir utan eina möru sem sogar til sín hamingjuna? Vissirðu að í Tjörninni er útburður sem á síðkvöldum kjagar að leiði móður sinnar í kirkjugarðinum og líkist vængbrotnum hrafnsunga? Hefurðu gist í svörtu herbergjunum á Hótel Borg? Og veistu hvað er á bak við kirkjuna í Landakoti?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞegar Íslendingar yfirgáfu sveitirnar tóku þeir draugana með sér, og líka þörfina fyrir að koma á þá böndum með sögum. Válynd veður, náttúruhamfarir, fátækt og einangrun hafa löngum verið frjór jarðvegur fyrir hvers kyns volæði, ótímabæran dauða – og týndar sálir.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eReimleikar í Reykjavík er byggð á ítarlegum viðtölum við lifandi og í sumum tilfellum dána Íslendinga. Hér birtast í fyrsta sinn nokkrar af alræmdustu draugasögum Reykjavíkur í seinni tíð, í bland við sögulegan fróðleik um borgina.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSteinar Bragi samdi texta bókarinnar en hann og Rakel Garðarsdóttir tóku tugi viðtala við fólk í bænum í leit að bestu, óþekktustu og hryllilegustu draugasögum miðbæjarins. Jóhann Páll Valdimarsson tók myndir fyrir bókina en teikningar í henni eru eftir Sunnu Sigurðardóttur.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124044333384,"sku":"OSC-46768","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/51684.jpg?v=1754774218","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/reimleikar-i-reykjavik-72494-46768","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}