{"product_id":"reisubok-guriar-simonardottur-70455-60809","title":"Reisubók Guðríðar Símonardóttur # 70455","description":"Reisubók Guðríðar Símonardóttur. Skáldsaga byggð á heimildum. Skáldsaga eftir Steinunni Jóhannesdóttur.\u003cbr\u003eÁrið 1627 varð einhver hrikalegasti atburður Íslandssögunnar, Tyrkjaránið svokallaða, þegar ofbeldismenn frá annarri veröld hertóku um 400 Íslendinga og fluttu þá nauðuga suður um höf til þrældóms í Barbaríinu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEin í hópnum var Guðríður Símonardóttir, ung sjómannskona og móðir í Vestmannaeyjum. Steinunn Jóhannesdóttir fylgir Guðríði á hennar löngu reisu í þrælakistuna í Alsír, segir frá níu ára vist hennar þar og lýsir ferðinni norður á bóginn aftur uns hún eygir Ísland á ný með Hallgrími Péturssyni Fjöldi annarra hernumdra Íslendinga fær einnig nafn og sögu í bókinni þar sem skyggnst er á bak við tjöldin í heimi araba og islams á 17. öld.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eAð baki þessu viðamikla skáldverki liggur sex ára rannsóknarvinna og ferðalög á söguslóðir í Alsír og Marokkó, á Mallorca, í Frakklandi, Þýskalandi, Englandi, Hollandi og Danmörku. Þótt fátt sé vitað með vissu um ótrúlegt lífshlaup Guðríðar er æði margt að finna um aldarandann og lifnaðarhætti fólks á þessum tíma. Í þann sjóð sækir höfundur og skapar heilsteypta, ævintýralega og spennandi sögu af ánauð og frelsun sterkrar konu.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121816699208,"sku":"OSC-60809","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/70455.jpg?v=1754731065","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/reisubok-guriar-simonardottur-70455-60809","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}