{"product_id":"riddarar-hringstigans-68881-15317","title":"Riddarar hringstigans # 68881","description":"Riddarar hringstigans. Skáldsaga eftir Einar Má Guðmundsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eRiddarar hringstigans hlaut fyrstu viðurkenningu í bókmenntasamkeppni Almenna bókafélagsins sem útgáfan efndi til á tuttugu og fimm ára afmæli sínu. Viðurkenningin var veitt í mars 1982.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁ meðan ég hleyp niður nýbónaðan stigann með klaufhamarinn hans pabba í annarri hendinni situr Óli á olíutanknum fyrir framan húsið.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁður en ég veit af hef ég lamið Óla með klaufhamrinum í hausinn.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÓli æpir.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÓli skelfur.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHausinn á Óla breytist í marga hausa. Óli hefur fjóra hausa.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSíðan glúkk: Upp úr burstaklipptu höfðinu skýst kúla, lítið hvítt egg, og tárin virðast hlaupa á undan Óla innum kjallaradyrnar á húsinu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÉg stend einn eftir fyrir framan olíutankinn sem er grafinn niður í jörðina. Aleinn með klaufhamarinn í hendinni. Með augunum sprengi ég tankinn í loft upp. Eldgular glæringar, stjörnuljós upp úr jörðinni.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHelvítis andskotans.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÉg bölva klaufhamrinum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÉg bölva pabba sem á klaufhamarinn.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÉg bölva Óla fyrir að vera með hausinn fyrir.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÉg bölva búðinni sem selur klaufhamra.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÉg bölva. Ég bölva.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003ci\u003eNiður með klaufhamarinn! \u003c\/i\u003e","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126607675720,"sku":"OSC-15317","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/68881.jpg?v=1754830184","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/riddarar-hringstigans-68881-15317","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}