{"product_id":"rimu-ljo-31379-29501","title":"Rímuð ljóð # 31379","description":"Rímuð ljóð. Ljóð eftir Tryggva Emilsson.\u003cbr\u003eGott eintak, tölusett og áritað nr. \u003cb\u003e129\u003c\/b\u003e af 500 eintökum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eTryggvi Emilsson verkamaður og rithöfundur fæddist 20.október 1902 í Hamarkoti, litlu bændabýli fyrir ofan Oddeyri á Akureyri, fimmta barn foreldra sinna af átta. Í fyrsta bindi ævisögu sinnar, Fátæku fólki (1976) lýsir hann væmnislaust en af nákvæmni harðri lífsbaráttu foreldra sinna allt ofan í dagvinnukaup föður síns aldamótaárið 1900 – það var 2 krónur og 56 aurar fyrir sextán stunda vinnudag í fiskvinnu eða við mokstur. Áhrifamiklar eru líka lýsingar hans á vinnudegi móður hans; í hennar hlut kom ekki aðeins að sjá um barnmargt heimilið, fæða það og klæða, heldur sá hún einnig um aðdrætti til þess – tíndi saman sitt af hvoru tagi í búðinni fyrir rýr laun eiginmannsins eða reyndi að slíta ölmusur út úr kaupmanni eða fátækrafulltrúa þegar heimilisfaðirinn fékk ekki vinnu eða lá veikur.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMóðir Tryggva dó frá börnum og eiginmanni þegar Tryggvi var sex ára, á veturnóttum 1908, og heimilið var leyst upp. Tryggvi var sendur alla leið suður til Reykjavíkur þar sem hann var hjá móðurbróður sínum og konu hans í tæp fjögur ár. Þá varð hann smali að Draflastöðum í Eyjafirði þar sem hann var í tvö sumur og síðan heilt ár við ömurleg kjör. Þaðan slapp hann við illan leik og var svo hjá föður sínum til sautján ára aldurs. Þá fór hann í vinnumennsku í Árnesi og kvæntist heimasætunni þar, Steinunni, og í Baráttunni um brauðið (1977) og Fyrir sunnan (1979) lýsir hann basli þeirra á Akureyri, í sveitinni og í Reykjavík. Eru lýsingar Tryggva á landnemaárunum í Reykjavík algerlega einstæðar og óhemju mikilvægur fróðleikur um líf fátæklinga í höfuðstaðnum á árunum eftir stríð.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eTryggvi Emilsson gaf út fáein skáldverk í bundnu og óbundnu máli en það er ævisagan sem mun halda nafni hans á lofti meðan íslenska er töluð og lesin.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eAthyglisgáfa Tryggva er aðdáunarverð og styrkur bókanna er sjaldgæf nákvæmni í lýsingum á atburðum, verklagi, aðbúnaði, tilfinningum og öðru sem lýst er. Þessari nákvæmni kann hann að beita bæði í þágu sagnfræði og listar. Það er því ekki síst rithöfundarhæfileikum hans að þakka að þessar bækur eiga eftir að vaxa stöðugt að gildi meðan einhver hefur áhuga á störfum og kjörum íslenskra lágstétta á 20. öld.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eTryggvi Emilsson lést árið 1993.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125494481224,"sku":"OSC-29501","price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/31379.jpg?v=1754809296","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/rimu-ljo-31379-29501","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}