{"product_id":"rimur-af-bua-andrissyni-og-frii-dofradottur-57290-50467","title":"Rímur af Búa Andríðssyni og Fríði Dofradóttur # 57290","description":"Rímur af Búa Andríðssyni og Fríði Dofradóttur. Eptir Grím Thomsen.\u003cbr\u003eGrímur Thomsen orti rímur af Búa Andríðssyni og Fríði Dofradóttur. Þar liggur til grundvallar ástarsaga þeirra, sagan sem sögð er í 13. og 14. kafla Kjalnesinga sögu. Ljóðið er langt, alls 260 erindi, og fjallar um samskipti Búa og Fríðar en söguþræðinum hefur Grímur breytt mikið. Í lok rímunnar er umfjöllun um Jökul Búason, son þeirra Fríðar og Búa sem sagt er frá í 18. kafla en sagan hjá Grími er á allt annan veg en segir frá í sögunni. Jökull er þar orðinn konungur í Dofrafjallinu, tekinn við ríkinu af Dofra afa sínum, og þangað fer Búi að heimsækja hann. Fríður fer til Íslands og hvílir sín lúnu bein í helli í Laugargnípu og verndar landið ásamt Esju, fósturmóður Búa. Frásögnin er þannig mjög á skjön við það sem segir í Kjalnesinga sögu.\u003cbr\u003eAnnað er sérkennilegt við þetta ljóð Gríms. Hann kallar það rímu en bragarhátturinn á kvæðinu á ekkert skylt við rímurnar. Kvæði Gríms er söguljóð en alls ekki ríma í skilningi þess orðs og vekur nokkra furðu að hann skuli velja því þetta nafn. Rímnahættirnir eru að uppbyggingu þannig að erindin eru ýmist fjórar, þrjá eða tvær braglínur. Í kvæði Gríms eru erindin ýmist sex eða átta línur. Auðvitað er þetta ekkert aðalatriði. Söguljóð Gríms um Búa og Fríði er afar vandaður skáldskapur. Um þær segir Sigurður Nordal: „Þær eru þó einhver hin snjöllustu söguljóð, sem kveðin hafa verið á íslenzku máli, ekki einungis vegna einstakra kafla, sem yfir gnæfa (eins og vísnanna um Reykjanesið og eftirmálans), heldur líka vegna þess, hvernig öll frásagan rennur fram með samfelldum epískum brag og svipmiklum straumi.“","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123476693320,"sku":"OSC-50467","price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/57290.jpg?v=1754763286","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/rimur-af-bua-andrissyni-og-frii-dofradottur-57290-50467","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}