{"product_id":"ritger-um-rikisvald-74152-50030","title":"Ritgerð um ríkisvald # 74152","description":"Ritgerð um ríkisvald eftir John Locke. Íslenzk þýðing eftir Atla Harðarson sem einnig ritar inngang.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eJohn Locke (1632 –1704) var enskur heimspekingur, sem hafði feikileg áhrif með ritum sínum í þekkingarfræði og stjórnspeki. Hann var einn helsti upphafsmaður bresku raunhyggjuhefðarinnar og lagði grunninn að hugmyndafræði frjálshyggju með frjálslyndum kenningum sínum. Kenningar Locke eiga rætur sínar að rekja til náttúruréttarhefðarinnar sem og nafnhyggjunnar. Hann var mikilvægur boðberi upplýsingarinnar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ bókinni Ritgerð um ríkisvald (e. The Second Treatise on Civil Government, 1689) kom Locke orðum að tveimur hugmyndum, sem margir tóku undir á næstu öldum. Hin fyrri var, að einkaeignarréttur gæti myndast af sjálfu sér og án þess að raska náttúrlegum réttindum manna, en hlutverk ríkisins væri að gæta eignarréttarins. Hin síðari var, að ríkið væri reist á þegjandi samkomulagi milli borgaranna, sem nefnt er samfélagssáttmálinn, en þegar valdhafar ryfu þetta samkomulag og virtu lítils eða einskis réttindi borgaranna, væri það réttur þeirra að rísa upp og hrinda þeim af höndum sér. Með síðari hugmyndinni varði Locke Dýrlegu byltinguna í Bretlandi 1688 og rökstuddi þrískiptingu ríkisvaldsins. Hún varð frjálslyndum stjórnmálahreyfingum 18. og 19. aldar mikil hvatning, til dæmis í bandarísku byltingunni 1776 og frönsku stjórnarbyltingunni 1789, og krafan um þingbundar konungsstjórnir, sem hljómaði víða í Norðurálfunni á 19. öld, meðal annars í Danmörku og á Íslandi, var ekki síst runnin undan rifjum Lockes. Í bók sinni, Stjórnleysi, ríki og staðleysur (e. Anarchy, State, and Utopia) blés Robert Nozick nýju lífi í stjórnspekihugmyndir Lockes.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eLocke taldi að gildi hlutar yrði til þegar vinna væri lögð í hann. Samkvæmt þessari kenningu getur fólk gert hlut að eign sinni með því að leggja í hann vinnu. Gildi hlutar ákvarðast því að verulegu leyti af þeirri vinnu sem lögð hefur verið í hann og því hvernig hann hefur verið nýttur. Engu að síður taldi Locke að framboð og eftirspurn væri það sem ákvarðaði verðgildi hlutar í frjálsum viðskiptum. En Locke taldi að vinnukenningin um gildi sýndi að einkaeignarrétturinn kæmi á undan ríkisvaldinu og að ríkisvaldið hafi því ekki leyfi til að gera það sem það vill við eigur þegnanna.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123683459400,"sku":"OSC-50030","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/74152.jpg?v=1754764494","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/ritger-um-rikisvald-74152-50030","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}