{"product_id":"rogmalmur-og-grasilfur-87539-72418","title":"Rógmálmur og grásilfur # 87539","description":"Rógmálmur og grásilfur. Ljóð og þýðingar eftir Dag Sigurðarson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHér eru auk frumortra ljóða Dags þýðingar hans á :- Fjórir forleikir um gullin golunnar e. Carl Sandburg. - Ameríka e. Allen Ginsberg. - Einbúi ; Regnið ; Ecuador ; Óður til Emiliano Zapato með hljómlist eftir Tata Nacho ; Cortés ; Glæpirnir ; Húngur á Suðurlandi ; Eufrosino Ramírez ; Quilareyr ; Einræðisherrarnir ; Suðrænn vetur, á hestbaki ; Hjartað úr Pedro de Valivia ; Fángelsin ; Annað veifið e. Pablo Neruda. - Múgur e. César Vallejo.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eDraumur forsætisráðherrans.\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHúsið stóð afsíðis í úthverfi, þriggja hæða timburbákn. Frá gluggunum bjarmaði rauðu. Forsætisráðherranum varð ekki um sel.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHaglið særði feitar kinnarnar. Frakkinn flaksaðist eins og tjúgfáni.\u003cbr\u003eForsætisráðherrann ríghélt í börðin á pípuhattinum tilþessað hann fyki ekki í þessu gjörningaveðri.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eForsætisráðherrann skalf. Hvernig var hann hingað kominn? Hvar var ráðherrabíllinn? Hvergi sjáanlegur.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eLoks áræddi forsætisráðherrann að gánga að húsinu og hringja. Allt var betra en að taka almenningsvagn heim.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eDyrnar opnuðust. Kommúnistar komu í gættina og kipptu honum innfyrir.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e- Ertu kominn, gripurinn?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eForsætisráðherrann skalf. Löfin á frakkanum skulfu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eKommarnir voru rauðir og þrútnir í framan, með húngurglampa í augum, lufsulegir til fara. Tveir þeirra skelltu forsætisráðherranum uppá borð og héldu honum föstum á höndum og fótum. Aðrir tveir sóttu stórviðarsög og tóku að saga hann sundur um mittið. Sá fimmti sat hjá, yddaði framtennur sínar með fínni þjöl og fylgdist með.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e- Fötin mín ! Fötin mín ! Fínu fötin mín ! veinaði forsætisráðherrann: Kjólfötin mín !\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e- Já, við vitum það, sagði sá sem hélt höndunum: Allur heimurinn er ein heljarstór flík.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e- Skrásett vörumerki ! bölvaði sá sem hélt löppunum. Þjalarinn urraði.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSögin beit illa. Forsætisráðherrann leið vítiskvalir. Hlutabréf ultu framúr sárinu í stað innýfla, silver dollars í blóðs stað.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e- Er það maginn? spurði vinnukonan. Hún stóð yfir honum með morgunteið.\u003cbr\u003eJú, það var maginn. Ekkert virtist geta hjálpað þessum maga. Hvorki uppskurðir né opinberar lystireisur.","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440459247944,"sku":"OSC-72418","price":19500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/87539.jpg?v=1770473792","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/rogmalmur-og-grasilfur-87539-72418","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}