{"product_id":"rokkurstundir-72052-61966","title":"Rökkurstundir # 72052","description":"Rökkurstundir. Tvær sögur eftir Henriettu frá Flatey.\u003cbr\u003eHér eru sögurnar: - Lækningin. Nútímasaga - Huldir harmar. Saga frá síðari hluta nítjándu aldar.\u003cbr\u003eHenríetta frá Flatey er skáldanafn Jensínu Henríettu Hermannsdóttur. Hún fæddist 11. júlí 1886 í Flatey á Breiðafirði og ólst þar upp. Á búskaparárum sínum bjó hún lengst af í Otradal í Arnarfirði með eiginmanni sínum, Guðmundi Guðmundssyni, bónda og sjómanni. Þau eignuðust níu börn og Henríetta notaði rökkurstundirnar, þegar heimilið var komið í ró, til skrifta. Eina útgefna verk hennar ber því nafn með rentu, Rökkurstundir. Bókin hefur að geyma tvær stuttar skáldsögur: Lækningin – nútímasaga og Huldir harmar – saga frá nítjándu öld. Það er athyglisvert hversu ólíkar þessar tvær sögur eru, sú fyrrnefnda er skrifuð inn í formúlu afþreyingarsagna en sú síðarnefnda er frumleg saga um þrjár kynslóðir kvenna þar sem kvennasjónarmið kemur glöggt fram sem og sálfræðilegt innsæi. Í sögunni er hjónabandinu hafnað á afdráttarlausan hátt sem slæmum kosti fyrir konur og sjálfsfórn kvenna hafnað.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHenríetta lést árið 1955.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121661477192,"sku":"OSC-61966","price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/72052.jpg?v=1754727482","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/rokkurstundir-72052-61966","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}