{"product_id":"rokkvar-i-runnum-67196-58488","title":"Rökkvar í runnum # 67196","description":"Rökkvar í runnum. Ljóð eftir Oddfríði Sæmundsdóttur frá Elliða. Rökkvar í runnum er eina bók Oddfríðar.\u003cbr\u003eOddfríður Sæmundsdóttir (Fríða) fæddist 13. júní 1902 á Elliða í Staðarsveit. Foreldrar hennar voru Stefanía Sæmundsdóttir húsmóðir, og Sæmundur Sigurðsson bóndi og hreppstjóri. Oddfríður giftist Ingólfi Sveinssyni og eignuðust þau þrjá syni, einn þeirra var Guðmundur píanóleikari.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eOddfríður stundaði verslunarstörf o.fl. áður en hún varð heimavinnandi húsmóðir. Eftir lát eiginmanns síns starfaði hún við verslun o.fl. Seinast vann hún hjá Lyfjaverslun ríkisins. Fríða lést árið 2000.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eFyrsta kvæði Oddfríðar sem birtist á prenti heitir „Við dagsetur“. Guðrún Erlingsdóttir, ekkja Erlings Þorsteinssonar, birti það í bók sem heitir Dropar og kom út 1927. Þegar Oddfríður var 86 ára gaf hún sjálf út ljóðabókina Rökkvar í runnum. Í bókinni eru ljóð ort á ýmsum tímum, einnig sönglagatextar, skátaljóð og þýðingar. Á bókarkápu segir Oddfríður að nú hausti að og rökkvi í runnum og ævikvöldið færist yfir og bókin sé því jafnframt kveðja til vina og samferðarmanna. Mörg ljóðin eru ort við Hreðavatn í landi Laxfoss. Kvæðið „Rökkvar í runnum“ hefur verið sungið inn á hljómplötur af Sigurði Ólafssyni og síðar Þuríði Sigurðardóttur og Ragnari Bjarnasyni, en lagið gerði Jónatan Ólafsson, frændi Oddfríðar. Kvæðið hefst svo:\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eRökkvar í iðgrænum runnum\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003erósirnar blómknöppum loka.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eTunglskinið titrar á unnum\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003etindana umlykur þoka...\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e(www.skald.is)","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122164990280,"sku":"OSC-58488","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/67196.jpg?v=1754739061","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/rokkvar-i-runnum-67196-58488","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}