{"product_id":"romm-er-su-taug-52784-32531","title":"Römm er sú taug # 52784","description":"Römm er sú taug. Kvæði eftir Friðrik Pétur Sigurðsson.\u003cbr\u003eFyrsta og eina bók Friðriks Péturs.\u003cbr\u003eFriðrik Pétur Sigurðsson er fæddur í Fagradal í Geysisbyggð í Nýja-Íslandi í Kanada. Bókina gaf hann út hér á landi þegar hann var hér í sinni fyrstu ferð \"heim til Íslands\".\u003cbr\u003eÍ Lögbergi 28. september 1950 fjallar Árni G. Eylands um bókina Römm er sú taug. Þar segir Árni m.a. \"Friðrik er fæddur vestra og hefir dvalið þar við búskap alla ævi og aldrei komið til Íslands fyrr. Nú hefir Friðrik gert það að gamni sínu, að gefa út bók með kvæðum og vísum eftir sig á meðan þau mæðginin eru\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eað skoða gamla landið. Og annað er skemmtilegt við þetta, dóttir Friðriks hefir gengið frá handriti bókarinnar upp á eigin spýtur og leist það svo vel af hendi að merkilegt má heita. Friðrik nefnir bók sína, \u003ci\u003eRömm\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eer sú taug\u003c\/i\u003e. Hún er prentuð í\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ePrentsmiðju Austurlands og svo\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esnoturlega frágengin að öllu\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eleyti að það mætti vel vera til\u003cbr\u003e\u003cbr\u003efyrirmyndar að minnsta kosti\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eöllum þeim, sem ekki bíta sig í\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþað, að pappírseyðslan sé aðalatriðið við skáldskap og bóka-\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eútgáfu. Ég ætla mér ekki að dæma\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eskáldskap Friðriks, en ég vil þó\u003cbr\u003e\u003cbr\u003evekja athygli á bók hans og\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþeirra mæðginanna. Mér finnst\u003cbr\u003e\u003cbr\u003etilkoma bókarinnar allmerkileg.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞarna hefir íþrótt vísunnar þolað þriggja ættliða „harðvist\" við\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehlið enskunnar, það er hluti af\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþeirri íþrótt, er Fanney dóttir\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eFriðriks gengur frá handriti að\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ebók föður síns og vinnur þannig\u003cbr\u003e\u003cbr\u003everk sem margur góður hagyrðingur hér heima hefði vart gert\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehjálparlaust fyrir sjálfan sig,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehvað þá aðra.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞessi hálfsjötugi bóndi, sem\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ekomið hefir upp 12 mannvænlegum börnum, hefir vafalaust\u003cbr\u003e\u003cbr\u003elengst af búskap sínum haft annað að sýsla en að sökkva sér niður í bókalestur og iðka ljóðagerð. En að honum sé íslenzk\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehagmælska í blóð borin er meira\u003cbr\u003e\u003cbr\u003een augljóst.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125403222344,"sku":"OSC-32531","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/34937.jpg?v=1754804603","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/romm-er-su-taug-52784-32531","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}