{"product_id":"rumissir-74662-63920","title":"Ærumissir # 74662","description":"Ærumissir. Eftir Davíð Loga Sigurðsson.\u003cbr\u003e1927. Jónas frá Hriflu er orðinn valdamesti stjórnmálamaður landsins. Hugsjónaríkur umbótamaður eða pólitískt óargadýr? Nú mun á það reyna. Vestur á Patreksfirði er sýslumaðurinn Einar M. Jónasson. Vanur að fara sínu fram í héraði, værukær um skýrsluskil til Reykjavíkur og bókfærslu embættisins. Jónas ákveður að nota hann til að kenna embættismannastéttinni lexíu. Komnir eru nýir vendir í stjórnarráðið. Ný vinnubrögð, ný hugsun. Ný harka. Og brátt veit Einar sýslumaður ekki sitt rjúkandi ráð. Ærumissir er pólitísk saga einstaklinga sem urðu leiksoppar í valdatafli. Þetta er frásögn af ólíkum örlögum á umbrotatímum þegar Ísland var að brjótast til nútímans. Davíð Logi Sigurðsson gerir þessari mögnuðu og átakanlegu sögu skil á næman og spennandi hátt. Hér er stuðst við einstæðar heimildir sem ekki hefur áður verið gefinn gaumur.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121322426696,"sku":"OSC-63920","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/74662.jpg?v=1754720242","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/rumissir-74662-63920","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}