{"product_id":"sa-eg-svani-83101-37604","title":"Sá ég svani # 83101","description":"Sá ég svani. Barnabók. Ljóð eftir Jakobínu Johnson.\u003cbr\u003eJakobína Johnson skáldkona fæddist á Hólmavaði i Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu árið 1883. Hún var dóttir Sigurbjarnar Jóhannssonar, bónda og skálds á Fótaskinni og Hólmavaði sem þótti með betri skáldum Þingeyinga á sinni tíð.\u003cbr\u003eJakobína flutti fimm ára vestur um haf með fjölskyldu sinni og var síðan búsett í Kanada og Bandaríkjunum. Hún ólst upp í Argyle í Manitoba í Kanada, lauk kennaraprófi árið 1904 og var síðan kennari í nokkur ár.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eJakobína giftist íslenskum manni af austfirskum ættum, Ísak Jónssyni. Hún var húsfreyja í Winnipeg í Manitoba og Victoria á Vancouver-eyju i British Columbia í Kanada en lengst af voru þau hjónin búsett í Seattle í Washington-ríki í Bandaríkjunum eða frá 1909.\u003cbr\u003eJakobina þýddi töluvert íslenskra bókmennta á ensku, s.s. leikritin Lénharð fógeta, eftir Einar H. Kvaran; Nýársnóttina, eftir Indriða Einarsson, og Galdra-Loft eftir Jóhann Sigurjónsson. Þá þýddi hún fjölda íslenskra ljóða sem m.a. birtust í safnritinu Icelandic Lyrics, Icelandic Poems and Stories, og í 20th Century Scandinavian Poetry, og Northen Lights.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125068366152,"sku":"OSC-37604","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/40741.jpg?v=1754795838","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/sa-eg-svani-83101-37604","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}