{"product_id":"safold-feramyndir-fra-slandi-83583-47716","title":"Ísafold. Ferðamyndir frá Íslandi # 83583","description":"Ísafold. Ferðamyndir frá Íslandi eftir Inu von Grumbkow. Haraldur Sigurðsson íslenskaði.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSumarið 1907 komu til Íslands tveir þýskir jarðfræðingar, Walther von Knebel og Hans Spethman. Með þeim í för var listmálarinn Max Rudloff. Voru þeir hingað komnir til að rannsala Öskju. Svo slysalega vildi til að þeir Knebel og Rudloff drukknuðu í Öskjuvatni. Spethmann var fjarstaddur og enginn til frásagnar um tildrög þessa slyss. Sumarið eftir réðst unnusta Knebels til Íslandsfarar ef vera mætti að henni tækist að grafast fyrir með hvaða hætti þetta hörmulega slys vildi til. Um það var hún einskins vísari en heimkomin ritaði hún bók um ferð sína. Þetta er einstaklega manneskjuleg frásögn af ferðum hennar um auðnir Íslands.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123950190920,"sku":"OSC-47716","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/52876.jpg?v=1754771742","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/safold-feramyndir-fra-slandi-83583-47716","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}