{"product_id":"saga-eiriks-magnussonar-i-cambridge-86858-72034","title":"Saga Eiríks Magnússonar í Cambridge # 86858","description":"Saga Eiríks Magnússonar. Eftir Stefán Einarsson.\u003cbr\u003eEiríkur Magnússon (1. febrúar 1833 – 24. janúar 1913) var lengst af ævi sinnar bókavörður í Cambridge, Englandi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEiríkur var menntaður guðfræðingur en sinnti fræðastörfum á mörgum sviðum. Hann var mikilvirkur þýðandi og útgefandi ýmissa fornrita, guðfræðirita, ljóða og sálma, þjóðsagna og ævintýra. Eiríkur hafði í áraraðir merka samvinnu við George Powell og William Morris um þýðingar og útgáfu á íslenskum bókmenntum. Þeir Powell þýddu m.a. flestar af þjóðsögum Jóns Árnasonar sem komu út í tveim bindum 1864 og 1866. Eiríkur og Morris þýddu mörg öndvegisverk íslensk eins og Heimskringlu, Grettis sögu, Völsunga sögu og Gunnlaugs sögu ormstungu. Eiríkur þýddi Völuspá á ensku og einnig m.a. sálminn „Allt eins og blómstrið eina“ eftir Hallgrím Pétursson. Einnig þýddi Eiríkur á íslensku, m.a. Ofviðrið (The Tempest) eftir Shakespeare og För pílagrímsins frá þessum heimi til hins ókomna (Pilgrim´s Progress) eftir John Bunyan. Eiríkur var mikill baráttumaður fyrir hagsmunum Íslands. Hann hafði talsverð samskipti við Jón Sigurðsson þar sem báðir voru Geirungar, félagar í Atgeirnum, deild innan Hins íslenska þjóðvinafélags. Hann var einnig baráttumaður fyrir „opnum bókasöfnum“ sem nýttust öllum almenningi og setti fram hugmyndir um framtíðarbókasafnið sem hann hugsaði sér að yrði spírallaga og mætti bæta við út frá miðju.","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440419696968,"sku":"OSC-72034","price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/86858.jpg?v=1770472570","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/saga-eiriks-magnussonar-i-cambridge-86858-72034","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}