{"product_id":"saga-i-sendibrefum-62496-55160","title":"Saga í sendibréfum # 62496","description":"Saga í sendibréfum. Þættir úr ævi séra Sigtryggs á Núpi. Finnur Sigmundsson tók saman.\u003cbr\u003eSigtryggur lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum 1894 og embættisprófi í guðfræði frá Prestaskólanum í Reykjavík 1897. Hann kenndi börnum og unglingum í Eyjafirði og í Hálshreppi 1878-87 sem og á námsárum sínum, var barnakennari í Reykjavík og víðar 1897-1905, stofnaði og stjórnaði Lýðháskóla á Ljósavatni 1903-1905, stofnaði ungmennaskólann á Núpi (síðan nefndur Héraðsskólinn á Núpi) árið 1906 og var skólastjóri hans frá stofnun og til 1929.\u003cbr\u003eFyrri kona Sigtryggs var Ólöf Júlíana Sigtryggsdóttir en hún lést 1902. Seinni kona Sigtryggs var Hjaltlína Margrét Guðjónsdóttir kennari og urðu synir þeirra þjóðþekktir, Hlynur veðurstofustjóri og Þröstur, skipherra í þorskastríðunum á áttunda áratugnum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSigtryggur var settur sóknarprestur í Svalbarðs- og Presthólaprestaköllum 1898, veittur Þóroddsstaður í Köldukinn og Lundarbrekka í Bárðardal, var veitt Dýrafjarðarþing 1904 og var skipaður prófastur Vestur-Ísafjarðarprófastsdæmis 1926.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSigtryggur hélt í heiðri hugsjónir ungmennafélaganna um ræktun lýðs og lands. Hann starfaði lengi í góðtemplarareglunni og kom upp, ásamt seinni konu sinni, blóma- ogtrjágarðinum Skrúði á Núpi. Þau hófu að rækta garðinn 1905 en hann var formlega opnaður haustið 1909.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122805932360,"sku":"OSC-55160","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/62496.jpg?v=1754750104","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/saga-i-sendibrefum-62496-55160","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}