{"product_id":"sagan-af-gurunu-ketilsdottur-77284-37094","title":"Sagan af Guðrúnu Ketilsdóttur # 77284","description":"Sagan af Guðrúnu Ketilsdóttur. Einsögurannsókn á ævi 18. aldar vinnukonu. Guðný Hallgrímsdóttir tók saman og skráði.\u003cbr\u003eSagan sem sögð er í þessari bók byggist meðal annars á sjálfsævisögubroti sem varðveist hefur og ber titilinn Ævisaga Guðrúnar Ketilsdóttur. Guðrún fæddist árið 1759 og er saga hennar líklega elsta varðveitta sjálfsævisaga íslenskrar alþýðukonu – vinnukonu frá 18. öld. Í sögunni fjallar Guðrún á opinskáan hátt um líf sitt í Eyjafirði og erfitt hjónaband með ótrúum eiginmanni. Frásögnin er full af einlægum og litskrúðugum lýsingum af mönnum og málefnum. Í bókinni er fjallað um líf hennar og afar þrönga stéttarstöðu og hvernig hún nær að hasla sér völl í erfiðu árferði móðuharðindanna. Döpur endalok ævi hennar draga fram hið harmsögulega í lífi þúsunda Íslendinga á þessum tíma. (Bókatíðindi 2013).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125102608712,"sku":"OSC-37094","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/40155.jpg?v=1754796861","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/sagan-af-gurunu-ketilsdottur-77284-37094","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}