{"product_id":"sagnabrot-helga-i-holum-26875-25794","title":"Sagnabrot Helga í Hólum # 26875","description":"Sagnabrot Helga í Hólum. Helgi Ívarsson í Hólum í Stokkseyrarhreppi segir frá.\u003cbr\u003eBókin Sagnabrot Helga í Hólum geymir úrval af skrifum fræðimannsins og bóndans Helga Ívarssonar frá Hólum í Stokkseyrarhreppi (1929-2009). Hér að finna greinar um þjóðfræði og sögu, sagnir af fátækt fyrri alda, kvenskörungum og höfðingjum, brot úr byggðasögu, ástarsögu frá gamalli tíð og frásögn af innreið útvarpsins í menningarlíf Flóamanna, svo fátt eitt sé talið. Helgi var barn tveggja tíma og þekkti af eigin raun margt í ævafornum vinnubrögðum og þjóðlífssiðum. Hann ber hér saman lífshætti 21. aldarinnar og þess tíma sem hann sjálfur fékk innsýn í hjá gömlu fólki í Flóanum snemma á 20. öld. Í skrifum sínum tekst höfundi snilldarlega að tvinna ritaðar heimildir saman við munnlega geymd hins aldna sagnaþular. Aftast í riti þessu er skrá yfir ritstörf Helga Ívarssonar og bókinni fylgir einnig vönduð nafnaskrá.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125694398792,"sku":"OSC-25794","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/26875.jpg?v=1754814008","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/sagnabrot-helga-i-holum-26875-25794","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}