{"product_id":"salin-hans-jons-mins-67780-58953","title":"Sálin hans Jóns míns # 67780","description":"Sálin hans Jóns míns. Leikr í þrem þáttum eftir frú Hólmfríði G. C. Sharpe.\u003cbr\u003eSálin hans Jóns míns er fyrsta leikritið eftir íslenska konu sem kemur út á prenti. Hólmfríður fluttist vestur um haf 15 ára gömul, til Milwaukee í Bandaríkjunum, og þar fer leikritið fram meðal íslenskra landnema, nánar tiltekið „í stofu Eiríks Anderssons“ árið 1892.10 Matthías Jochumsson kynntist Hólmfríði á ferðum sínum vestanhafs og skrifar um hana eftirmæli\u003cbr\u003eí kvennablaðið Framsókn, undirrituð M.J. Þar segir hann að hún hafi verið „skáldkona og prýðisvel ritfær“ og bætir við í sviga: „(á ensku)“. Það er eins og hann geti ekki skrifað undir að hún hafi verið vel ritfær á íslensku! Hann nefnir heldur ekki leikritið sem þó var nýkomið út og hefur honum ef til vill ekki líkað málfarið á því, vestur-íslenska talmálið sem höfundur leggur persónum sínum svo skemmtilega í munn, og hafði ekki verið gert fyrr.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122126717256,"sku":"OSC-58953","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/67780.jpg?v=1754737424","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/salin-hans-jons-mins-67780-58953","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}