{"product_id":"samenn-sandanna-55268-49722","title":"Sáðmenn sandanna # 55268","description":"Sáðmenn sandanna. Saga landgræðslu á Íslandi 1907-2007. Friðrik G. Olgeirsson tók saman og skrásett.\u003cbr\u003eÍ júlí 1907 hófst landgræðsla á vegum ríkisins. Þá hafði gróðri hnignað mikið frá landnámi vegna náttúruhamfara, veðurfars og slæmrar umgengni þjóðarinnar um landið. Margar sveitir höfðu orðið illþyrmilega fyrir barðinu á uppblæstri og sandroki og viðbúið var að skaðinn yrði víða óbætanlegur ef ekkert yrði að gert. Þótt fyrstu sandgræðslumennirnir hefðu fátæklegan útbúnað tókust þeir ótrauðir á við sandrokið og höfðu óbilandi trú á ætlunarverki sínu. Það sama má segja um þá sem á eftir þeim komu. Í bókinni er litið yfir farinn veg síðustu hundrað árin og saga landgræðslu og gróðurverndar sögð í máli og myndum. Fjallað er um verkefni Sandgræðslu Íslands fram til ársins 1965 og Landgræðslu ríkisins sem þá var stofnuð. Í bókinni eru um 260 ljósmyndir, teikningar og kort. Flestar myndanna eru stórar litmyndir. Lifandi og myndræn frásögn af því hvernig Íslendingar sneru vörn í sókn, stöðvuðu uppblástur af mannavöldum og klæddu landið fögrum litum gróðurs á ný. (Bókatíðindi 2007).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123740344648,"sku":"OSC-49722","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/55268.jpg?v=1754765479","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/samenn-sandanna-55268-49722","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}