{"product_id":"silfurtungli-70882-44633","title":"Silfurtúnglið # 70882","description":"Silfurtúnglið. Leikrit í fjórum þáttum eftir Halldór Kiljan Laxness.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSilfurtunglið var upphaflega frumsýnt í þjóðleikhúsinu 1954 og er fyrsta tilraun höfundarins til að skapa sér eigin leikritunarstíl þar sem hann hæðist að fáranleika nútímalifs. Rakin er saga Lóu, húsmóður og móður með fallega söngrödd, sem hefur gaman að því að syngja fyrir nýfæddan son sinn. Lóa er \"uppgötvuð\" af hinum vafasama Feilan sem er framkvæmdastjóri næturklúbbsins Silfurtunglsins og hann gerir hana að táknmynd þess hreina og upphaflega, ímynd sem hann getur selt því firrta fólki sem stundar næturklúbbinn. En í þessu umhverfi verður hæfileiki hennar ekki svipur hjá sjón og atriði hennar niðurlægandi. Feilan kynnir Lóu fyrir Mr. Peacock, forstjóra Universial Contracts Inc., í þeirri von að gera hana að alþjóðlegri stjörnu en forstjórinn lætur sér nægja að forfæra þessa trúgjörnu ungu konu. Að lokum er niðurlæging hennar algjör, sonur hennar hefur dáið, eiginmaðurinn yfirgefið hana og henni er fleygt út úr skemmtanaiðnaðinum eins og hverju öðru rusli.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124207321416,"sku":"OSC-44633","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/70882.jpg?v=1754780196","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/silfurtungli-70882-44633","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}