{"product_id":"siustu-forvo-41838-38551","title":"Síðustu forvöð # 41838","description":"Síðustu forvöð. Eftir Þorvald Gylfason.\u003cbr\u003eHvar stöndum við og hvert stefnum við? Bókin leggur brennandi spurningar fyrir lesandann. Hvers vegna eru laun á Íslandi svona lág? Hvað þarf til að lyfta þjóðinni upp úr láglaunabaslinu? Hvers vegna eru frændur okkar Írar ein fátækasta þjóð í Evrópu? Hvernig tókst Færeyingum að koma efnahagslífi sínu á kaldan klaka? Hverjir bera ábyrgðina? Hvers vegna eru Norðurlönd í kreppu? Hvað brást? Afhverju stafar atvinnuleysi? Hverjir hafa hag af því? Hvað getum við lært af hagvaxtarundrinu í Austur-Asíu? Hvers getum við orðið vísari af umskiptum Austur-Evrópulandanna frá miðstjórn til markaðsbúskapar? Hvernig er hyggilegast að haga svo gagngerum umskiptum, í áföngum eða einum rykk? Hvers eðlis er búverndarstefna Evrópusambandsins? Hvað kostar hún? Hvert leiðir hún? Eigum við samleið með Evrópu? Til hvers? Eigum við á hættu að missa bezta fólkið burt? Hvað getum við gert til að snúa vörn í sókn og halda unga fólkinu heima? Höfundur bókarinnar, Þorvaldur Gylfason, svarar þessum spurningum fyrir sitt leyti. Hann fjallar skýrt og skorinort um efnahagsógöngur Íslendinga undanfarin ár og setur þær í samhengi við ýmsar veilur í innviðum efnahagslífsins, hagstjórn og hagstjórnarfari heima fyrir og einnig við efnahagsþróun í öðrum löndum. Hann leiðir rök að því, að rætur efnahagsvandans hér heima liggi djúpt í innviðum samfélagsins, viðhorfum og hugarfari og teygi anga sína langt aftur í tímann og róttækra efnahags- og stjórnarfarsumbóta sé þess vegna þörf til að leiða Íslendinga út úr ógöngunum.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124965310792,"sku":"OSC-38551","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/41838.jpg?v=1754794243","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/siustu-forvo-41838-38551","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}