{"product_id":"sjomeistarasagan-64982-53109","title":"Sjömeistarasagan # 64982","description":"Sjömeistarasagan eftir Halldór Kiljan Laxness.\u003cbr\u003eÞessi nýja saga Halldórs Laxness frá æskuárum hans á sér að mestu leyti stað á stuttu tímabili milli tveggja fyrri bóka hans, annars vegar sögunnar Í túninu heima og hins vegar Úngur eg var; það er að segja að hún gerist um 1918—19. Vitaskuld grípa hugmyndir höfundar frá öðrum tímum inn í frásögnina, þó að yfirleitt greini þær sig skýrt frá þeim tíma, sem hún lýsir. Fyrst og fremst er höfundur að tala um Reykjavík sem eden æsku sinnar, áður en undrun hans snýst upp í lífsreynslu. Þetta er auðvitað harla einkennilegur staður, þar sem allt fólk, þekkt sem óþekkt, er sögupersónur í höfði upprennandi skáldsagnahöfundur og þessvegna ábyrgðarlaust gjörða sinna gagnvart honum, hvað sem öðru líður. Sögumaður er að lýsa ósviknum sagnahöfundi á æskuskeiði með því að láta hann sjálfan segja frá: ef fólkið væri alveg raunverulegt og höfundur hversdagslegur þátttakandi í lífi þess, hlyti hann að krefja það fullrar sögulegrar ábyrgðar gagnvart sér persónulega. Ég leyfi mér að ætla að þessi skilsmunur sé kjarni sögunnar.\u003cbr\u003e(Káputexti)","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123046056264,"sku":"OSC-53109","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/64982.jpg?v=1754756179","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/sjomeistarasagan-64982-53109","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}