{"product_id":"skaldi-i-skriftinni-11105-8503","title":"Skáldið í skriftinni # 11105","description":"Skáldið í skriftinni. Snorri Sturluson og Egils saga. Höfundur Torfi H. Tulinius.\u003cbr\u003eHvers vegna var Egils saga samin og hvaða þýðingu hafði hún í huga lesenda á 13. öld? Hver er Egill og hvernig endurspeglar lýsingin á honum atburði í lífi Snorra Sturlusonar, líklegs höfundar sögunnar? Hér glímir Torfi H. Tulinius við þessar og fleiri hliðstæðar spurningar og leggur fram óvænta lausn á þeirri ráðgátu sem Egils saga er. Hugvitssamleg rannsókn á byggingu Egils sögu og innihaldi, sem helgast af nýjum skilningi á eðli íslenskrar menningar á Sturlungaöld og tengslum hennar við evrópska miðaldamenningu leiðir höfundinn inn á nýjar brautir, en hann er prófesor í frönsku og miðaldabókmenntum við Háskóla Íslands og hefur sent frá sér fjölmargar ritsmíðar um fornsögurnar. Þessi fyrsta bók hans um efnið á íslensku hefur ekki aðeins þýðingu fyrir skilning okkar á Egils sögu heldur Íslendingasögum sem bókmenntagrein. Skáldið í skriftinni er í ritröðinni Íslensk menning sem Reykjavíkur-Akademían og Hið íslenska bókmenntafélag standa að. (Bókatíðindi 2004).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51127026024776,"sku":"OSC-8503","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/60039.jpg?v=1754837848","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/skaldi-i-skriftinni-11105-8503","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}