{"product_id":"skessukatlar-53947-37177","title":"Skessukatlar # 53947","description":"Skessukatlar. Ljóð eftir Þorstein frá Hamri.\u003cbr\u003eSkessukatlar er tuttugasta frumsamda ljóðabók Þorsteins frá Hamri en einnig hafa komið út söfn og úrvöl ljóða hans. Skessuketill er hola í berg, segir Íslensk orðabók, „mynduð við núning steinhnullunga sem þyrlast í hringiðu“, og má hugsa sér að skáldið vísi með titlinum öðrum þræði til nútímans með hraða sínum og óþoli. Ljóðin eru mörg hlý og óvenju persónuleg en önnur almennari og ádeilukennd. Endurtekið stef er margslungin tengsl nútíma og fortíðar.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125094056264,"sku":"OSC-37177","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/40248.jpg?v=1754796615","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/skessukatlar-53947-37177","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}