{"product_id":"skriufoll-og-snjoflo-i-ii-64844-56891","title":"Skriðuföll og snjóflóð I-II # 64844","description":"Skriðuföll og snjóflóð eftir Ólaf Björgvin Jónsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÓlafur Björgvin Jónsson (1895-1980) framkvæmdastjóri og búnaðarráðunautur vann mestallan starfsaldur sinn í Gróðrarstöðinni á Akureyri. Samhliða störfum sínum þar fór hann að stunda ferðir í Ódáðahraun, fyrst meira sér til andlegrar upplyftingar en síðar urðu þetta markvissar könnunar og rannsóknarferðir. Niðurstaðan varð ritsafnið Ódáðahraun í þremur bindum, sem út kom árið 1945. Rúmum áratug síðar eða 1957 kom út annað ritsafn, Skriðuföll og snjóflóð í tveimur bindum. Ritið er að miklu leyti ávöxtur af rækilegri heimildakönnun þar sem Ólafur fór í gegnum annála, tímarit og blöð og skrifaði upp úr þeim allt sem lýtur að skriðum og snjóflóðum. Auk þess talaði hann við fólk sem mundi eftir þess háttar fyrirbærum og fór um landið og kannaði verksummerki.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122471174472,"sku":"OSC-56891","price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/64844.jpg?v=1754744385","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/skriufoll-og-snjoflo-i-ii-64844-56891","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}