{"product_id":"skuggabox-54612-49175","title":"Skuggabox # 54612","description":"Skuggabox. Skáldsaga eftir Þórarinn Eldjárn.\u003cbr\u003eÞekkirðu náunga sem heitir Sveinbjörn Egilsson? Bílstjórinn hristi höfuðið. - Nei, sagði hann, á hvaða stöð er hann? - Ég veit það ekki, einhvers staðar á Rosmhvalanesi kannski. Bílstjórinn renndi í gegnum allan sinn persónufróðleik. Hann grandskoðaði starfsferil sinn á Suðurnesjum. Hann fór yfir árshátíðir, samningafundi og félagsfundi, blað félagsins og sögu þess, en varð ekki var. - Nei, því miður, ég held ég komi honum ekki fyrir mig. Kort þakkaði fyrir og steig út úr bílnum. Hann gekk spölkorn eftir gangstétt í átt að dyrunum á Víðavangi. Bíllinn ók af stað. Skyndilega stansaði hann og bakkaði í áttina til hans aftur, bílstjórinn hafði skrúfað niður gluggann og kallaði til hans: - Heyrðu, var það ekki hann sem þýddi Hómerskviðurnar?","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123783434568,"sku":"OSC-49175","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/54612.jpg?v=1754767043","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/skuggabox-54612-49175","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}