{"product_id":"sland-ferasaga-fra-17-old-82309-36845","title":"Ísland. Ferðasaga frá 17. öld # 82309","description":"Ísland. Ferðasaga frá 17. öld. Daníel Vetter segir af ferðum sínum. Hallfreður Örn Eiríksson og Olga María Franzdóttir þýddu. Helgi Þorláksson sá um útgáfuna.\u003cbr\u003eHús sín hafa þeir að mestu jörðu niðri, lítill munur er á ytri klæðnaði karla og kvenna svo að erfitt er að greina á milli kynjanna og í Heklu logar eldur án afláts. Þannig sagðist Tékkanum Daniel Vetter m.a. frá í ferðalýsingu sinni Islandia eða Ísland sem kom út árið 1638.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eJón Sigurðsson forseti var í hópi þeirra sem töldu frásögn Tékkans mesta fleipur og færð hafa verið rök að því að hann hafi aldrei komið til landsins. Þorvaldur Thoroddsen ritaði hins vegar að Vetter hafi tekið vel eftir öllu á ferð sinni á Íslandi og „sagt svo rétt frá sem honum frekast var unnt“.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eDaniel Vetter var hámenntaður maður, kenndi m.a. krónprinsinum, syni Friðriks „vetrarkonungs“. En kom hann til Íslands? Hvaða ár hefur það þá verið? Og af hverju ber mönnum svona mikið á milli í afstöðu sinni til hans? Þessu reyna Helena Kadeckova og Helgi Þorláksson að svara í inngangi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHeilum 345 árum eftir útkomu sína birtist ferðalýsing Vetters í fyrsta sinn á íslensku, þýdd beint úr tékknesku af Hallfreði Erni Eiríkssyni og Olgu Maríu Franzdóttur. Myndir eru í bókinni, ýtarlegar skýringar og skrár.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125124923720,"sku":"OSC-36845","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/39882.jpg?v=1754797335","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/sland-ferasaga-fra-17-old-82309-36845","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}