{"product_id":"sland-polera-84270-70381","title":"Ísland pólerað # 84270","description":"Ísland pólerað. Ljóð og sögur eftir Ewu Marcinek. Helga Soffía Einarsdóttir þýddi.\u003cbr\u003eÍsland pólerað er safn örsagna og ljóða eftir pólska rithöfundinn Ewu Marcinek sem búsett er í Reykjavík. Efni bókarinnar er sjálfsævisögulegt að hluta og lýsir veruleika ungrar pólskrar konu í Reykjavík og upplifun hennar af íslensku samfélagi og tungumáli. Bókin, sem upphaflega var skrifuð á ensku, hefur verið í smíðum um nokkurn tíma og áður hafa birst úr henni ýmis brot, svo sem í tímariti Ós pressunnar og í Tímariti Máls og menningar. Auk þess hefur alþjóðlegi leikhópurinn Reykjavík Ensamble sett hluta verksins á svið í leiksýningunni Ísland Pólerað eða Polishing Iceland sem margir lesendur kannast eflaust við. Bókin á sér því margslungna viðtökusögu og kemur hér út í heild sinni í fyrsta sinn í íslenskri þýðingu Helgu Soffíu Einarsdóttur. Tilurð bókarinnar endurspeglar að mörgu leyti þann samfund tungumála og menningarheima sem á sér stað í frásögninni; bókin er, líkt og höfundur hefur sjálfur bent á, innflytjendasaga eftir pólskan rithöfund, skrifuð á ensku og gefin út hjá íslensku forlagi.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51120363995464,"sku":"OSC-70381","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/84270.jpg?v=1754697898","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/sland-polera-84270-70381","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}