{"product_id":"sland-um-aldamotin-61126-19123","title":"Ísland um aldamótin # 61126","description":"Ísland um aldamótin. Ferðasaga sumarið 1899 eftir Friðrik J. Bergmann.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSéra Friðrik lítur íslensk\u003cbr\u003emálefni, bæði andleg og veraldleg, föðurlegum gagnrýnisaugum og ber þá hlutina\u003cbr\u003egjarnan saman við það sem hann þekkir frá Ameríku. Og hann er siðavandur. Á\u003cbr\u003eeinum stað segir hann til dæmis:\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞað þarf ekki glöggt auga til að sjá, að kirkjurækni á Íslandi hefur farið\u003cbr\u003estórhnignandi síðastliðin 25-30 ár. Hún er því miður ekki bezt í kauptúnunum, þar\u003cbr\u003esem fólkið á þó langbezt með að sækja kirkju. Því að þar eru sífelldar útreiðar á\u003cbr\u003esunnudögum í allar áttir og þá reyna menn að taka daginn eins snemma og þeim er\u003cbr\u003eunnt.\u003cbr\u003eOg ekki er hann hrifinn að aðkomunni að Reykjavík\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞegar kom heim undir höfuðstaðinn, fórum við að verða vör við hinn mesta aragrúa\u003cbr\u003eaf útreiðarfólki og voru þar margir nokkuð ölvaðir. Kringum Reykjavík eru einlæg\u003cbr\u003esmákot, þar sem selt er vín, og er einna mest af því gjört á sunnudögum. En í sjálfum\u003cbr\u003ebænum ber mjög lítið á drykkjuskap og er það tvent ólíkt eða áður var, þegar enginn\u003cbr\u003evar til að sporna á móti og frægð þótti að því að vera sem mestur brennivínsberserkur.\u003cbr\u003e","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126229205320,"sku":"OSC-19123","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/28068.jpg?v=1754824993","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/sland-um-aldamotin-61126-19123","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}