{"product_id":"slandsfer-john-coles-82011-13760","title":"Íslandsferð John Coles # 82011","description":"Íslandsferð John Coles. Með kafla um Öskju eftir E. Delmar Morgan. Gísli Ólafsson þýddi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHér segir af ferð þriggja Englendinga um Ísland sumarið 1881. Upphaflega birtist þessi ferðasaga á ensku árið 1882 undir heitinu Summer Travelling in Iceland og fylgdi henni þá ensk þýðing höfundarins á Bandamannasögu, Þórðar sögu hreðu og Hrafnkels sögu Freysgoða. Að öðru leyti hugsaði höfundur sér rit sitt sem kynningarrit fyrir væntanlega ferðalanga. Í því skyni fylgdu ýmsar hagnýtar leiðbeiningar í viðbæti, sem hér er sleppt.\u003cbr\u003eÞeir félagar fóru ríðandi úr Reykjavík austur um sveitir, norður yfir Sprengisand, vestur í Vatnsdal og þaðan yfir Stórasand, Arnarvatnsheiði, Kaldadal og um Þingvöll til Reykjavíkur. Alls tók ferðin um mánuð. Í Reykjavík stönsuðu þeir nánast ekkert. Meðan þeir voru í Þingeyjarsýslu brá einn þeirra sér ásamt fylgdarmanni til Öskju og ritaði um það stuttan kafla í bókina.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126689628488,"sku":"OSC-13760","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/61042.jpg?v=1754832108","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/slandsfer-john-coles-82011-13760","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}