{"product_id":"slensk-skip-i-iv-79397-38941","title":"Íslensk skip I-IV # 79397","description":"Íslensk skip. Eftir Jón Björnsson.\u003cbr\u003eAlls er um fjögur bindi að ræða sem hafa að geyma upplýsingar um nánast öll skip og báta sem á Íslandi hafa verið frá árinu 1860 fram á mitt árið í ár. Greint er ítarlega frá ferli skipanna úr skráðum heimildum, stærð, gerð, öllum skráningum og umskráningum, eigendum og endalokum ef um slík er að ræða. Á þriðja þúsund mynda er að finna í verkinu og eru sumar þeirra mjög sjaldgæfar. Höfundur verksins er Jón Björnsson frá Bólstaðarhlíð í Vestmannaeyjum.\u003cbr\u003eÍ formála segir Jón Björnsson að upphaf verksins megi rekja til þess er hann var staddur hjá vinafólki í Vestmannaeyjum fyrir mörgum árum. Þegar hann fór að skoða myndir hafi rifjast upp ótal minningar frá uppvaxtarárum hans í Eyjum. Hafi þær kveikt með honum löngun til að eignast myndir af sem flestum Eyjabátum og hafi hann byrjað að safna. Fljótlega kom að því að Jón ákvað að einskorða sig ekki aðeins við Vestmannaeyjar og að ágrip af sögu hvers báts þyrfti að fylgja myndinni.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124948074824,"sku":"OSC-38941","price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/42283.jpg?v=1754793449","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/slensk-skip-i-iv-79397-38941","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}