{"product_id":"slensk-urvalsljo-44282-40630","title":"Íslensk úrvalsljóð # 44282","description":"Íslensk úrvalsljóð. Guðmundur Andri Thorsson valdi.\u003cbr\u003eÍ þessari bók eru íslensk úrvalsljóð en hún geymir samt ekki úrval íslenskra ljóða. Þetta eru ekki bestu ljóð sem ort hafa verið á íslensku – aðeins örlítið sýnishorn af þeim mikla ljóðaauði sem við eigum. Allt eru þetta gömul og sígild íslensk ljóð sem eiga hér í samræðum og jafnvel andsvörum því að ljóðunum er raðað efnislega en hvorki í tímaröð né eftir höfundum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHér eru ljóð alveg frá elstu tíð og fram á 20. öld; þau ná úr grárri forneskju Eddukvæðanna og til hinna síðustu ljóðskálda hér á landi sem ortu ljóð sín að mestu ósnortin af formbyltingu 20. aldarinnar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞröngt er skorinn stakkurinn í svona kveri, enda til þess hugsað að láta liggja einhvers staðar á góðum stað þar sem gott er að eiga ljóðastund með sjálfum sér, blaða í, lesa eitthvað fallegt og gott, láta streyma til sín töfrana sem leynast milli línanna í ljóðunum okkar gömlu.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124868743496,"sku":"OSC-40630","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/44282.jpg?v=1754789951","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/slensk-urvalsljo-44282-40630","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}