{"product_id":"slenskir-kongar-75216-64282","title":"Íslenskir kóngar # 75216","description":"Íslenskir kóngar. Skáldsaga eftir Einar Má Guðmundsson.\u003cbr\u003eKnudsenar hafa búið í Tangavík í meira en tvær aldir. Þar hafa þeir reist síldarbræðslur, vöruskemmur og verslunarhús, setið í bæjarráðum og bæjarstjórnum, átt stakkstæði, mjölverksmiðjur, vélbáta, togara og frystihús og stjórnað lúðrasveitum, karlakórum og kvenfélögum. Knudsenættin hefur bæði átt sína stórveldistíma og farið á hausinn. Hún hefur horfið og komið aftur, svona einsog gengur og gerist með kóngaættir, verið bæði feikivinsæl og afar óvinsæl og allt þar á milli.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eKnudsenarnir í Tangavík eru skrautleg og flokksholl ætt með dugandi útgerðarmönnum, ættræknum bankastjórum, drykkfelldum sjoppueigendum, ástsælum alþingismönnum, skapmiklum fegurðardrottningum og jafnvel elskulegum þorpshálfvitum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSaga þeirra er samofin sögu alþýðunnar því hana hafa þeir ráðskast með frá ómunatíð. Sá sem segir söguna er gamall nemandi Arnfinns Knudsen, eins glæsilegasta fulltrúa ættarinnar frá upphafi.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121284448584,"sku":"OSC-64282","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/75216.jpg?v=1754719105","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/slenskir-kongar-75216-64282","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}