{"product_id":"slenzka-teiknibokin-i-rnasafni-68959-52997","title":"Íslenzka teiknibókin í Árnasafni # 89868","description":"\u003cp\u003eÍslenzka teiknibókin í Árnasafni eftir Björn Th. Björnsson. Ásgerður Ester Búadóttir gerði teikningar.\u003cbr\u003eÍ teiknibókinni er saga sköpunarinnar sögð í sex litlum myndum, á tveim síðum. Þeir sem muna sín kristin fræði taka e.t.v. eftir því, að teiknarinn fylgir sköpunarsögunni ekki bókstaflega, heldur dregur hann verk tveggja daga saman í eitt, sköpun ljóss og myrkurs og sköpun festingar, en skiptir hinsvegar sköpun ferfættra dýra og mannsins í tvo reiti. Því fer fjarri að þetta sé nokkurt persónulegt túlkunarbragð hans, heldur er það orðin föst hefð á síðari hluta miðalda. Maðurinn er orðinn svo kotroskinn, að honum finnst hann yfir það hafinn að eiga samflot með ferfættum skepnum, jafnvel á þessum árdögum allra hluta, og nokkru síðar gengur hann feti framar og aðskilur sköpun karls og konu í tvær ólíkar myndir. Þótt smávægilegt sé, speglar það hina breyttu heimsmynd mannsins, - hann lítur æ meir á sig sjálfan sem þungamiðju veraldar.\u003c\/p\u003e","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123060080968,"sku":"OSC-52997","price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/89868.jpg?v=1781264808","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/slenzka-teiknibokin-i-rnasafni-68959-52997","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}