{"product_id":"slettunga-i-iii-87773-72566","title":"Sléttunga I-III # 87773","description":"Sléttunga I-III. Safn til sögu Melrakkasléttu. Níels Árni Lund tók saman.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eFjölmargir leggja leið sína um Melrakkasléttu og virða fyrir sér landið og náttúruna en vantar söguna sem hætta er á að glatist. Sléttungu er ætlað að koma í veg fyrir það. Hún er lifandi frásögn; fróðleikur í bland við sögur og sagnir.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e* I. bindi er sögusviðinu lýst; leitað í sögur og sagnir og annan fróðleik. Sérfræðingar og áhugafólk rita m.a. um náttúruna, heilbrigðis- og skólamál, skipströnd og fjölbreytt menningarlífið.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e* II. bindi er rakin saga allra býla á Sléttu um tveggja alda skeið, eða frá því um 1800 og fram á 21. öldina; sagt frá ábúendum og daglegu lífi fólksins.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e* III. bindi er saga Raufarhafnar – bújarðarinnar, verslunarstaðarins og sjávarþorpsins allt frá því staðarins er fyrst getið og fram á þessa öld.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eYfir 1000 ljósmyndir eru í Sléttungu. Flestar tengjast efninu en margar eru óháðar stað og stund; lýsa þeim fjölbreytta ævintýraheimi sem Sléttan er. Einstök landakort af Melrakkasléttu eru í ritinu – með um 1000 örnefnum sem eru í fyrsta skipti staðsett af þeim sem best þekkja til; ómetanlegum fróðleik þar með bjargað. Sléttunga er kærkomin þeim sem unna þjóðlegum fróðleik, náttúru og sögu landsins.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eNíels Árni Lund f. 1950 er kennaramenntaður og var kennari og skólastjóri um tíu ára skeið. Frá 1987 hefur hann starfað í Stjórnarráði Íslands, í því ráðuneyti sem farið hefur með landbúnaðarmál, lengst af sem skrifstofustjóri.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eNíels Árni er frá Miðtúni á Melrakkasléttu og þar nyrðra þekkir hann vel til – söguna, fólk og staði. Árið 1996 gaf hann út bókina Leiftur frá liðnum tímum – samantekt á handritum afa hans, Kristins Kristjánssonar bónda og járnsmiðs í Nýhöfn og árið 2005 kom út eftir Níels Árna bókin Af heimaslóðum – saga foreldra hans og samfélagsins við Leirhöfn.","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440510497096,"sku":"OSC-72566","price":19500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/87773.jpg?v=1770474263","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/slettunga-i-iii-87773-72566","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}