{"product_id":"smaladrengurinn-8025-11017","title":"Smaladrengurinn # 8025","description":"Smaladrengurinn. Leikrit í V þáttum eftir Freymóð Jóhannsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁslaug: - Illa? Hvað eigið þjer við með því?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEinar: - Jeg var að hugsa um -- hm. Erindið var eiginlega að, hjer --- Þjer eruð ógiftar -- auðvitað.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁslaug: - Jú --- það er ég.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEinar: - Hm. -- Ja, þá datt mjer í hug að spyrja yður um það, svona grenslast um það, hvort þjer munduð ekki vera til með að, hm -- að giftast?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁslaug: - Jeg býst ekki við að giftast fyrst um sinn.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEinar: - (Stendur upp og gengur um gólf. Snýr sjer alt í einu að Áslaugu). Ekki þó að jeg legði hjarta mitt, sjálfan mig, alla mína framtíð og framtíðarhorfur í auðmýkt fyrir fætur yðar (krýpur) og bæði yður að veita mjer þá upphefð, að verða -- konan mín. (Grípur hönd Áslaugar). Jeg skal sjá um, að þjer þurfið aldrei að drepa hendi í kalt vatn.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁslaug: - (Stendur upp) Við skulum ekki eyða fleiri orðum um þetta, Einar. -- Jeg get ekki orðið konan yðar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEinar: - Einmitt það, -- Jeg mátti náttúrulega búast við því. -- En -- Hm -- mætti jeg -- heyra ástæðuna.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁslaug: - Jeg elska annan mann og get þess vegna ekki elskað yður.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEinar: - (eftir umhugsun) Nei, það er ekki von. - Nú - þá get jeg farið að fara. -- Hm. -En ef ungfrúin skyldi nú -- ekki giftast þeim manni. Hjer -- mætti jeg þá hafa nokkra von? - Jeg get beðið nokur ár, ef þjer viljið.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁslaug: - Jeg gef yður enga von, því að jeg get aldrei orðið konað yðar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEinar: - Hm -- einmitt það.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁslaug: - Má ekki bjóða yður kaffisopa?","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126872605000,"sku":"OSC-11017","price":4600.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/freymodurjohannesson_smaladrengurinn_leikrit.jpg?v=1754835202","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/smaladrengurinn-8025-11017","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}