{"product_id":"sneiar-ekki-af-osti-49847-45237","title":"Sneiðar - ekki af osti # 49847","description":"Sneiðar - ekki af osti. (Umhendur II). Ljóð eftir Hallberg Hallmundsson.\u003cbr\u003eHallberg var fyrsti starfsmaður Valdimars Jóhannssonar hjá bókaútgáfunni Iðunni þar sem hann las prófarkir, þýddi barnabækur og hannaði bókakápur á árunum 1956-60. Þrítugur að aldri fluttist Hallberg til New York með bandarískri eiginkonu sinni þar sem hann vann sem ritstjóri alfræðiorðabóka á árunum 1961–1982 og síðar á Business Week 1984–2001.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁrið 2002 flutti Hallberg aftur til Íslands og skrifaði umsagnir um íslenskar bækur fyrir World Literature Today og var einn af ráðgjöfum þess um val bóka til umsagnar. Hallberg stundaði jafnframt þýðingarstörf, bæði af og á íslensku, allt frá því hann flutti utan. Hallberg skrifaði margar greinar, langar og stuttar, á ensku um íslensk og norræn málefni og einnig fjölda greina um bókmenntaleg og sagnfræðileg efni.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁ Íslandi hafa komið út fimmtán ljóðabækur eftir Hallberg og tvö smásagnasöfn; auk þess ritstýrði hann An Anthology of Scandinavian Literature (1966) og Icelandic Folk and Fairy Tales (1987). Þýðingar hans á íslensku losa fimmta tuginn. (www.forlagid.is)","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124128252232,"sku":"OSC-45237","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/49847.jpg?v=1754778665","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/sneiar-ekki-af-osti-49847-45237","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}