{"product_id":"sogukaflar-og-kvaedi-87340-72287","title":"Sögukaflar og kvæði # 87340","description":"Sögukaflar og kvæði eftir Guðmund Haraldsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGuðmundur Haraldsson fæddist í Merkisteini á Eyrarbakka 4. maí 1918. Foreldrar hans voru Haraldur Guðmundsson frá Stóru-Háeyri á Eyrarbakka, afkomandi Þorleifs ríka á Háeyri, og kona hans, Þuríður Magnúsdóttir frá Árgilsstöðum í Rangárþingi. Guðmundur var sjómaður og verkamaður til rúmlega fimmtugs, en gerðist þá rithöfundur og gaf út margvísleg rit með þáttum, frásögnum og kvæðum. Guðmundur Haraldsson lést í Reykjavík 1995.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eGuðmundardrápa Haraldssonar\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGuðmundur með gæði fín,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003egáfnaflóð úr augum skin.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHans eru ljóðin hrein sem lín,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog höfug eins og eðalvín.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGuðmundur með geislakrans,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003egáfumaður þessa lands.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSínum geiri Brjótur brands\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ebeinir að liði andskotans.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eJafnan yrkir Gvendur greitt,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eglitrar í hendi stílvopn beitt.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHefur margan svannan seitt,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog sefur hjá þeim yfirleitt.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞó Guðmundur sé leggjalár,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog logi í djúpi undin sár.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eAldrei haggast kappinn klár.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eKneifar hann glaður vínsins tár.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞegar skáldið greip í glas,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eglaðlegt hafði uppi mas.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEn kæmist hann í þrálátt þras,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþrælum reiðipistil las.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSkal nú ljúka ljóðasmíð,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003elaufgist björk í skáldsins hlíð,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVefjist um þig velsæld blíð,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003evinur minn á hverri tíð.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGuðm. Ágústsson.","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440445944136,"sku":"OSC-72287","price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/87340.jpg?v=1770473379","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/sogukaflar-og-kvaedi-87340-72287","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}