{"product_id":"sogur-eftir-gunnar-gunnarsson-47926-43717","title":"Sögur eftir Gunnar Gunnarsson # 47926","description":"Sögur eftir Gunnar Gunnarsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSögurnar eru - Augu dauðans ; Sáttin ; Sporður ; Hefndin ; Bónorð Geirs ; Systurnar ; Dimmufjöll ; Rauði fossinn ; Kirkja fyrirfinst engin ; Hjálmar flækingur.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGunnar Gunnarsson fæddist 18. maí 1889 á Valþjófsstað í Fljótsdal, næsta bæ við Skriðuklaustur. Hann var elsta barn foreldra sinna, Gunnars Helga Gunnarssonar og Katrínar Þórarinsdóttur. Fjölskyldan flutti að Ljótsstöðum í Vopnafirði vorið 1896 og þar andaðist móðir hans úr lungnabólgu 18. september 1897. Móðurmissirinn varð honum þungbær og setti mark sitt á líf hans og skrif.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGunnar byrjaði ungur að yrkja kvæði og skrifa smásögur og leikrit. Þegar hann var aðeins 17 ára komu fyrstu bækur hans út, Vorljóð og Móðurminning. Ljóðakverin voru upphafið á langri og bjartri framabraut.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGunnar ákvað að gerast rithöfundur á danska tungu vegna þess að íslenskan var töluð af fámennri þjóð. En frægð og frami komu ekki fyrirhafnarlaust.\u003cbr\u003eFyrsta skáldsaga Gunnars, Trond Ørnen, hlaut ekki náð fyrir augum útgefenda. Frá hausti 1909 og fram til 1912 lifði Gunnar við kröpp kjör, fyrst í Árósum og síðan í Kaupmannahöfn. Mestum tíma varði hann á bókasöfnum og dró fram lífið á ritlaunum sem hann fékk fyrir kvæði, smásögur og greinar í tímaritum og blöðum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁ nýársdag 1912 flutti Gunnar í lítið kvistherbergi í Kaupmannahöfn og skrifaði á fáum mánuðum fyrsta bindið af Sögu Borgarættarinnar. Um vorið tók Gyldendal bókina til útgáfu. Þar með var ísinn brotinn og glæstur ferill hafinn.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124467663176,"sku":"OSC-43717","price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/47926.jpg?v=1754782311","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/sogur-eftir-gunnar-gunnarsson-47926-43717","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}