{"product_id":"sogur-ur-skarsbok-40701-37571","title":"Sögur úr Skarðsbók # 40701","description":"Sögur úr Skarðsbók. Ólafur Halldórsson sá um útgáfuna. Úrval úr postulasögum prentað eftir Codex Scardensis - Skarðsbók.\u003cbr\u003eSkarðsbók er nafn á tveimur fornum íslenskum skinnhandritum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSkarðsbók Jónsbókar er lögbókarhandrit, sem hefur að geyma Jónsbók og nokkrar réttarbætur. Í handritinu kemur fram að það var skrifað 1363. Talið er að handritið hafi verið skrifað í Helgafellsklaustri, og að verkbeiðandinn hafi verið Ormur Snorrason lögmaður á Skarði á Skarðsströnd. Handritið er í Árnasafni, og hefur safnnúmerið AM 350 fol.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSkarðsbók postulasagna var lengi í eigu kirkjunnar á Skarði á Skarðsströnd, en hvarf þaðan um 1820. Handritið kom síðar fram á Englandi og var þar í einkaeign. Það var selt á uppboði 30. nóvember 1965 og var keypt til landsins af íslensku bönkunum og gefið íslensku þjóðinni. Var það fyrsta handritið sem afhent var Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi til varðveislu, og hlaut safnmerkið SÁM 1 fol.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125070332232,"sku":"OSC-37571","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/40701.jpg?v=1754795903","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/sogur-ur-skarsbok-40701-37571","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}