{"product_id":"solborgir-53045-47851","title":"Sólborgir # 53045","description":"Sólborgir. Austurfararvísur 1963 eftir Guðmund Inga Kristjánsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGuðmundur Ingi Kristjánsson fæddist á Kirkjubóli í Bjarnardal í Önundarfirði 15. janúar 1907.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGuðmundur Ingi ólst upp á Kirkjubóli og var þar heimilisfastur alla ævi. Hann stundaði nám í eldri deild Alþýðuskólans á Laugum 1929-1930 og í eldri deild Samvinnuskólans í Reykjavík 1931-1932, en var að öðru leyti sjálfmenntaður. Ungur hóf hann afskipti af margháttuðum félagsmálum innan sveitar og utan og hélt því áfram meðan heilsa hans leyfði. Hann var í stjórn ungmennafélagsins Bifröst í Mosvallahreppi 1922-1937 og 1938-1942, og ritari Héraðssambands ungmennafélaga Vestfjarða 1932-1951. Í stjórn Kaupfélags Önfirðinga sat hann 1935-1937 og 1938-1978. Hann sat í stjórn Búnaðarfélags Mosvallahrepps 1927-1947, og var formaður Búnaðarsambands Vestfjarða 1947-1983. Hann var fulltrúi á þingum Stéttarsambands bænda frá stofnun þess 1945, og stjórnarmaður þar 1970-1986. Í hreppsnefnd Mosvallahrepps sat hann 1938-1956 og 19521982, þar af oddviti samfellt frá 1956. Sýslunefndarmaður var hann 1954-1986. Einnig átti hann lengi sæti í skólanefnd hreppsins, og einnig í skólanefnd héraðsskólans á Núpi. Aðalatvinna hans var búskapur, en formlega tók hann þó ekki við búi á Kirkjubóli fyrr en 1944; þangað til var móðir hans talin fyrir búinu. Samhliða búskapnum fékkst hann við barnakennslu í hreppnum, með hléum 1927-1946, en samfellt 1954-1974. Frá 1955 var hann skólastjóri barnaskólans í Holti. Nokkur afskipti hafði hann einnig af stjórnmálum og var þrisvar í framboði til alþingis fyrir Framsóknarflokkinn: við tvennar kosningar 1942 á Ísafirði, og 1946 í Vestur-Ísafjarðarsýslu. Um 1960 tók hann einnig nokkurn þátt í störfum samtaka herstöðvaandstæðinga.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGuðmundur Ingi sendi frá sér fimm ljóðabækur undir heitunum: Sólstafir 1938, Sólbráð 1945, Sóldögg 1958, Sólborgir 1963 og Sólfar 1981. Ljóð allra þessara bóka voru endurútgefin í safnritinu Sóldagar 1993, en þar er einnig að finna viðauka með yngri ljóðum. Auk þess hefur birst eftir hann fjöldi ljóða og lausavísna, greina og frásagna í blöðum, tímaritum og safnbókum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGuðmundur Ingi var sæmdur riddarakrossi 1984 og var heiðursborgari Mosvallahrepps og síðar Ísafjarðarbæjar.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123943440712,"sku":"OSC-47851","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/53045.jpg?v=1754771268","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/solborgir-53045-47851","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}