{"product_id":"soleyjarkvaei-81513-44785","title":"Sóleyjarkvæði # 81513","description":"Sóleyjarkvæði eftir Jóhannes úr Kötlum.\u003cbr\u003eSóleyjarkvæði eftir Jóhannes úr Kötlum kom fyrst út á bók 1952. Kvæðið var ort í andrúmslofti sárra tilfinninga vegna inngöngu Íslands í NATÓ árið 1949, herstöðvasamningsins við Bandaríkin og komu bandarísks herliðs til Íslands 1951. Í kvæðinu segir frá Sóleyju sólufegri og baráttu hennar við að reyna að vekja menn og vætti Íslands til dáða gegn skuggaöflum vígtóla og hernaðar, sem stungið hafa riddarann hennar prúða með svefnþorni svo hún fær ekki vakið hann. Skáldið vefur í ljóðin stef úr þjóðkvæðum og stemmum frá eldri tíð og auk þess eru ótal vísanir til sögulegra viðburða í samtímanum og eitruð pólitísk skeyti.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSóley sólufegri\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esitur við hafið á kóralskóm,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eleikur við linda\u003cbr\u003e\u003cbr\u003elykill frá Róm,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eaugun blá eins og stjörnur,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003evarirnar rauðar sem blóm.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124174258504,"sku":"OSC-44785","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/81513.jpg?v=1754779824","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/soleyjarkvaei-81513-44785","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}