{"product_id":"soleyjarsaga-48563-44236","title":"Sóleyjarsaga # 48563","description":"Sóleyjarsaga. Skáldsaga eftir Elías Mar.\u003cbr\u003eÍ Verkamanninum 4. maí 1954 birtist dómur um Sóleyjarsögu Elíasar Mar. Þar segir m.a. \"Undirritaður verður að viðurkenna það, að fyrri bækur höfundar hefur hann ekki lesið og kemur því enginn samanburður við þær til greina.\u003cbr\u003eSóleyjarsaga gerist í Reykjavík á síðustu árum. Sögupersónur eru borgarar höfuðstaðarins, og leynir sér ekki að höfundur þekkir það fólk mæta vel, áhugamál þess, lífsbaráttu og hvatir, enda margar persónur skýrt og greinilega mótaðar, þó að nokkuð sé erfitt um vik, að gera sér þess fulla grein, meðan sagan er ekki nema hálf.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEkki gerist þess þörf að rekja efni bókarinnar, enda lesendum hollast að kynna sér það sjálfir án nokkurra milliliða.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMjög er fjallað um félagsleg vandamál nútímans og þau áhrif, sem það hefur á fólkið, bæði þá,sem fara á mis við gæði lífsins og hinna, sem njóta þeirra í stærra skammti en góðu hófi gegnir. En einmitt sú staðreynd, að höfundi virðist fyllilega ljósar orsakir og afleiðingar á þessu sviði, gefur bók hans fyrst og fremst gildi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSóleyjarsaga er sönn lýsing ýmissa mikilvægra þátta, sem skapa Reykjavík nútímans og við bíðum framhaldsins með eftirvæntingu. Fyrr en það kemur verður sagan ekki dæmd til fulls né heildaráhrif hennar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞ. D.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124261126472,"sku":"OSC-44236","price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/48563.jpg?v=1754781051","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/soleyjarsaga-48563-44236","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}